Menningar- og minningarsjóður kvenna auglýsir eftir umsóknum vegna úthlutunar styrkja árið 2016.
Að þessu sinni verða veittir styrkir til kvenna af erlendum uppruna, sem ekki hafa íslensku að móðurmáli, og stunda nám til öflunar starfsréttinda eða á háskólastigi við íslenska skóla.
Með umsókn skal fylgja rökstuðningur umsækjenda af hverju hún ætti að hljóta styrkinn, auk upplýsinga um nám og tímaáætlun um framvindu þess. Jafnframt skal fylgja umsókn staðfesting á skólavist.
Til úthlutunar eru 700.000 kr. og áskilur stjórnin sér rétt til að ákveða fjölda styrkþega.
Nánari upplýsingar eru veittar á skrifstofu Kvenréttindafélags Íslands í síma: 551-8156 eða á netfangi: mmk[@]krfi.is.
Umsóknarfrestur er til 5. september 2016.
Tilkynnt verður um styrkveitingar þann 27. september 2016 og verður öllum umsóknum svarað.